Sævar Ö reit kl. 00:03 Já. Það er ótrúlegt hvað maður freistast oft til þess að endurvekja þetta svokallaða hópblók. Stundum bara finnur maður þessa ótrúlega sterku þörf fyrir að segja eitthvað sem öllum er sama um og enginn vill hlusta á (varla maður sjálfur) en maður þarf samt að koma frá sér. Svo núna vitið það, ég er að nota ykkur sem lesið þetta! Ha ha.

Annars er allt rólegt þessa dagana. Maður er bara að slappa af þangað til maður fer austur að vinna. Merkilegt samt hversu þreyttur maður getur orðið á því að slappa af þrátt fyrir hversu hátt metið það er "að slappa af". En það verður víst nóg að gera þegar þar að kemur.

Völli og Karna fóru annars austur á föstudaginn á honum Sæmundi. Á Sæmundi í Skepalæk.

Jæja, góða nótt.