Völundur
reit kl.
15:59
Jæja, ég er kominn.
Best að reyna að skrifa hérna næstu vikurnar.
Málin standa þannig að ég er í áfanga hjá manni sem heitir Jón Özur, hann lætur okkur blóka. Ég var búinn að búa til vefsvæði á www.folk.is, það var ekki allveg að gera sig.
ótrúlega slappt, maður má "velja" útlit á vefinn sinn, valið samanstendur af Britney Spears, Avril Lavigne, Ricki Martin og Schumaker, eða einhverju álíka rusli.
Þannig að, ef félagar mínir hérna hafa einhvern áhuga á því að skrifa smotterí, þá endilega, glaðari gæti ég ekki orðið.
Það hefur nú margt gerst síðan þessi vitleysa hætti síðast, Atli er útskrifaður, Sævar flúði símann sinn til Mexíkó, Gummi er fluttur út og inn í íbúð tenga-ömmu og afa í kópavogi og vinnur sem Atvinnuskáti. Bjarti er ennþá í gryfjunni og er orðinn duglegur að læra - hann er líka að fara til frakklands eftir mánuð. Birkir er að læra í bænum, ekki heyrt í honum lengi.
Síðustu dagar hafa farið í um-brot á "hey þú" skítamóralls-söngleikjarkynningarefni, var að senda leiksrána yfir netið rétt áður en ég hljóp af stað í tíma.
Ég er að hugsa um að hætta núna og fara að hugsa um hvað ég eigi að blóka um næst, hugsa um að hugsa um að hætta...
Takk melir, bið að heilsa.
skrá inn
Notandi:
Lykilorð:
Mundu mig:
Lömbin okkar
Tenglar
Svalt
Ósvalt
Skjalasafn
Vikan
Javascript nauðsynlegt