Sævar Ö reit kl. 11:15 Úff... ég er svo svangur. Ég veit ekki hvað það er, en svona síðasta hálfa árið hef ég ekki gefið mér tíma á morgnana til þess að fá mér morgunmat. Þetta getur ekki verið heilbrigt.

Mér finnst alltaf jafngaman að lesa samsæriskenningarnar á Serendipity. Var til dæmis að lesa mér til um hinn dularfulla dauðdaga Dr Frank Olson, en þarna er því haldið fram að upplýsist dauði Dr. Olsons að fullu muni það knésetja sjálfa leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA. Hann var sem sagt vísindamaður í verkefni á vegum CIA sem gekk út á að þróa aðferðir og/eða lyf til þess að heilaþvo fólk. Endilega lesið þessa grein, þetta er eins og versti reyfari úr kalda stríðinu...

Hér er smá kafli úr greininni (leturbreytingar eru frá mér):
"On the morning of January 1, 1963, Dr. Gilbert Bogle, and his lover, Mrs. Margaret Chandler, were found dead on a river bank after a riotous party given by staff of the Commonwealth Scientific and Industrial Research Organization. Bogle, a brilliant scientist, had told friends that he was about to go to the US to work on scientific research of great military importance. The deaths were never solved, but Sydney detectives became convinced that Bogle and his colleagues had been experimenting with LSD and the effect it produced on their thought-processes - the invitation to the New Year's party required each guest to bring a painting done under the influenced of the drug - and either by accident or by design someone had slipped the couple what turned out to be an overdose."

Spáið í þessu! Sennilega eitt fríkaðasta áramótapartí sögunnar þar sem hver gestur á að koma með málverk málað undir áhrifum af LSD!

Sævar - fyrir sýru