Sævar Ö reit kl. 16:23 Ef svo ólíklega vildi til að einhver vildi mig feigan akkúrat á þessari stundu væri sennilega nóg fyrir þann hinn sama að sýna mér skanna. Eyddi öllum deginum eftir vinnu í gær að skanna fjölskyldumyndir frá Auði sem hún ætlar að nota í ... ja ég má eiginlega ekki segja það á svona opinberum vettvangi. En ég allavega hef þróað með mér ákveðið skannaóþol og býst alveg við að það endist í nokkra daga.

Vitleysingurinn Bjössi skrifar um löggur í dag. Ég er nú alveg sammála honum að mörgu leyti. Ég er nú samt ekki alveg jafn vel lesinn um málið og hann, en sá viðtal við þá dæmdu lögreglufélaga í Ísland í dag í ... gær. Og þessir gaurar eru nú greinilega ekki alveg þeir saklausustu. Mér fannst spyrillinn þjarma ágætlega að þeim, sennilega af því hann hefur sjálfur lent í því að vera fullur gaur á djamminu í Miðbæ Reykjavíkur, labbað óvart fram fyrir lögreglubíl, verið handjárnaður og meisaður í kjölfarið, fluttur upp á stöð og nauðgað. Svo skammaðist hann sín svo mikið fyrir þetta að hann þorði ekki að kæra en tók síðan reiðina og pirringinn út á þessum tveimur löggum sem gerðu það sama við annan gaur. En ég veit þetta ekki fyrir víst...
Sjálfur hef ég ekki upplifað að lenda í svona leiðindalöggum þannig að ég ber ekki þessar sterku tilfinningar í brjósti gagnvart þessu máli. En mér finnst meðferð lögreglumannanna alveg pottþétt óréttlát. Svo mikið get ég sagt.

Svo er eitt enn sem ég verð að koma frá mér: Ég þoli ekki orma! Svona tölvuorma sem læða sér inn í tölvuna manns og gera allt ómögulegt. Lenti nefnilega í því í vinnunni í dag að yfirfara eitthvað í kringum 60-70 tölvur, s.s athuga hvort ormurinn hafi verið á þeim og plástra fyrir svo hann komi ekki aftur seinna. Og viti menn, á 12 vélanna lék ormurinn lausum hala! Magnað. Ætti ég kannski að nefna að við vorum 2 og stundum 3 í þessu? Allavega, þetta tók næstum 5 tíma og nú er ég með dynjandi hausverk. Úff.

Ég held ég fari í langt og heitt bað þegar ég kem heim. Og svo að sofa....

Sævar - (ekki) fyrir orma