Bjartmar
reit kl.
23:11
Var ég duglegur í dag vá, þetta var alveg rosalegt. Ég er svo stoltur af sjálfum mér. í dag var ég að velta því fyrir mér hvernig spilafíkn er og hverjir verða fyrir henni. Ég vinn nefnilega af og á kassa þar sem ég get séð á hliðina á þessu fólki sem stendur allann daginn og spilar, kemur stökum sinnum til mín til að skipta peningnum í smáa. Ég held að það séu um það bil svona 6 manns háðir spilafíkn hérna á hvolsvelli, og að mínu mati er það ekki sérlega myndarlegt fólk. Það er fólk sem er frekar háar tölur á viktinni gömlu góðu í eldhúsinu heima. En svo er það líka hitt hinn hefðbundni klinkari sem notar bara klinkið sitt í þetta, var kannski bara að kaupa kókómjólk með fimmhundruðkalli og eyðir svo restinni í spilaskassan, en kvartar svo yfir því hvað kókómjólkin er dýr. Af hverju eru þessir kassar, það vinnur engin í þeim og þetta er til styrktar fólki sem er háð þeim. Þetta er hringrás satans að mínu mati. Lætur fólk sem má minna mega sín í þjóðfélaginu sem á varla efni á súrmjólk eyða restinni af peningunum sínum í von um betra líf, sem kemur oftast aldrei nema að maður hætti þessum óþverra og kaupir sér bara gameboy tölvu til að leika sér í.
Annars hafði ég það fínt í dag takk fyrir.
skrá inn
Notandi:
Lykilorð:
Mundu mig:
Lömbin okkar
Tenglar
Svalt
Ósvalt
Skjalasafn
Vikan
Javascript nauðsynlegt