Bjartmar
reit kl.
00:27
Vá það er bara dáldið síðan ég blókaði síðast, ætli það segju bara ekki nokkrir dagar en ég er allavegana kominn aftur og ætla að halda núna reglulegt blók í einhvern tíma.
< Summary >
Þetta er búinn að vera soldið markverður vetur hjá mér ef maður kíkir aðeins á hann. Nú í vetur ef ég setið í nemendaráði og auk þess verið í skólanum. Ég ætla nú ekki að fara að kaspra um það núna en ég ætla að segja hvað ég ef náð að gera í vetur sem ég mundi aldrei trúa í lífi mínu ef mér yrði sagt þetta. Ég varð nefnilega ræðumaður kvöldsins þegar við kepptum í morfís við fjölbrautarskóla Suðurlands. Ég ætlaði mér aldrei að taka þátt bara skráði mig á eitthvað blað bara til að það yrðu nú fleiri þáttakendur en pælti svo aldrei í því meir. Svo einn góðan veðurdag þá hringir Guðmundur í mig og segir að ég sé í liðinu, ég pælti ekkert sérlega mikið í því var að skoða klám eða eitthvað álíka en hugsaði með mér jæja þá er ég í liðinu og hélt að ég yrði svona stuðningsmaður inni í sal að halda á spjöldum og ef til vill hjálpa til við að semja ræður hinna þar sem ég hafði aldrei séð morfís vissi ég ekki hvernig þetta gekk út á. Dagurinn kom og Gummi spurði mig hvort ég væri búinn að semja og segji nei, ekkert sérlega með námið í fyrsta farrýmí eins og ég ætti að hafa það, en þá fékk ég að vita að ég ætti að segja tvær ræður á keppninni ein fyrir og ein á eftir og þær ættu að vera um þrjár mínútur og umræðu efnið væri Ingibjörg Sólrún (jíbbí). Þannig að ég fer og sem tvær ræður um hvað ég lít upp til Ingibjargar og að hún sé móðir tvegga stráka og manneskja með tilfinningar og leyfi til að gera mistök eins og við öll hin. Leyfi frá guði og það getur enginn tekið frá henni. Reyndar talaði ég líka eitthvað um mig í gulum regngalla þegar ég var lítill. En viti menn ég var valinn ræðumaður kvöldins og á eftir að fá bikar. Þetta kom öllum á óvart. Mér aðallega. Ef ég ætti að lýsa þessu þá væri það helst þannig að ég væri forljótur og allir hafa vitað það, svo er ég að vinna á fegursti karlmaður íslands þar sem einn veikist og ég er tekinn í staðinn bara til að fylla upp í skarðið annars yrði það svo ljót að sjá einhvern einn ganga, þar sem allar hreyfingar voru búið að þaul æfa og ég svo mundi ég vinna keppnina þannig tilfinning fékk ég þegar ég vann ræðumaður kvöldins. Því á þeim tíma þegar hann var að lýsa úrslitin var ég að hugsa með sjálfum mér er ég í síðasta eða næstsíðasta sæti.
skrá inn
Notandi:
Lykilorð:
Mundu mig:
Lömbin okkar
Tenglar
Svalt
Ósvalt
Skjalasafn
Vikan
Javascript nauðsynlegt