Sævar Ö
reit kl.
00:23
Hæ! Þetta er ég, Sævar. Þið munið kannski ekki eftir mér, það er rosa langt síðan ég hef komið hingað? Allavega. Þetta er nú búinn að vera viðburðarríkur tími sem ég hef lifað án þess að blóka. Ég var í Frakklandi og kom heim og fór í eitt próf og þá var skólinn búinn. Þá fór ég að vinna og svona og hér sit ég í dag og blóka.
Dagurinn í dag var reyndar öðruvísi. Þegar ég var búinn að standa í þrjú kortér á einhverjum leikvelli lengst úti í rassgati að raka steina á grasi hringdi mamma og sagði að ég ætti að fara í bæinn með pabba í dag. Það kom í ljós að hann var meiddur á hné (nánar tiltekið með rifinn liðþófa) sem er ekki gott þegar maður er flutningabílstjóri. Ég sem sagt sat í bílnum og stökk út úr honum öðru hverju til að halda á kössum eða keyra vörubretti. Fín tilbreyting frá heyskapnum.
Ég fattaði allt í einu áðan að ég átti eftir að búa til ballmiða fyrir skólaballið á föstudaginn. Ég vona bara að Gummi verði samur við sig og lesi þetta ekki...
Jæja, góða nótt.
Sævar - fyrir slasaða
skrá inn
Notandi:
Lykilorð:
Mundu mig:
Lömbin okkar
Tenglar
Svalt
Ósvalt
Skjalasafn
Vikan
Javascript nauðsynlegt