Atli reit kl. 22:50 Jæja, long time no blók...

Ég er rámur og góður, nýkominn af hljómsveitaræfingu en Hölt Hóra er að fara að trylla ungu kynslóðina á Föstudaginn. Nánar tiltekið erum við að fara að spila í Félagsmiðstöðinni á Selfossi, fyrir 8.-10. bekk... Már... þú ert velkominn.

En ástæðan fyrir því að ég hef ekki blókað svona líka svakalega lengi er ekki vegna anna, neee þvert á móti þá hef ég legið aðgerðarlaus síðustu mánuði. Ástæðan er sú að ég er að leita að staðgengli til þess að sjá um þetta fyrir mig. Nú er verið að fara að sýna Hæfileikakeppnina á Popp Tíví um helgina og býst ég ekki við að komast út úr húsi þar sem það verður örugglega krökkt af aðdáendum og ljósmyndurum. Þannig að, frá og með næstu viku mun staðgengill blóka í minn stað. Ég tók viðtal við hann í gær og sá strax að hann er sá rétti. Hann heitir Heiðar og er 18 ára nemi á félagsfræðibraut í MÁ. Fínn gaur...

Ég reyni að blóka soldið þangað til... ef Séð og Heyrt taka ekki allan tímann minn...

p.s strákar... Punk Tjútters, þið ættuð kannski að fara að mínum ráðum og gera hið sama?