Sævar Ö
reit kl.
04:53
Hjálp!
Ég hef greint sjálfan mig með áður óþekktan sjúkdóm sem ég kýs að kalla: "umbrots-þreytu". Þið vitið hvernig maður fær flugþreytu þegar maður hefur flogið lengi í flugvél? Þetta er alveg eins nema maður fær þetta þegar maður hefur verið að brjóta t.d. skólablað eins og Nota Bene. Það mætti jafnvel kalla þetta NotaBene-þreytu í sértækum tilfellum eins og mínu. Allavega, stofan hefur verið lögð undir tölvuver síðan á mánudag, og reyndar hef ég varla farið út úr húsi síðan á mánudag, og ég hef verið fastur við tölvurnar (þær eru 3) allan tímann. Langt fram á nótt. Hversu vonlaus er maður?
O jæja. Ég er farinn að sjá fyrir endann á þessu núna, sem er gott, og held ég skelli mér bara í háttinn.
Góða nótt öll sömul!
skrá inn
Notandi:
Lykilorð:
Mundu mig:
Lömbin okkar
Tenglar
Svalt
Ósvalt
Skjalasafn
Vikan
Javascript nauðsynlegt