Gummi reit kl. 10:53 "Allur péningur sem Hóran halar inn á að fara í bjór" Þetta er regla segir Atli Fannar Bjarkason nýjasta stjarnan í poppheiminum. Þá kvaðst hann ættla að svíkja litlu börnin og ekki mæta um leið og hann prumpaði kveðju prumpið áður en hann fór.

Ég ákvað að reyna að borga upp skuldir mínar frá Akureyri með því að gerast leyni-greinarhöfundur fyrir Séð og Heyrt. Atli var fyrsta fórnarl.... nei ég meina fyrsti viðmælandinn, það er ekki eins og SogH sé að nýðast á fólki sama hvað hver segir. Reyndar held ég að eina fólkið sem SogH er að nýðast á er fólkið sem kaupir þetta sorp.

En þetta var ekki það sem ég ættlaði að blóka um, ég var reyndar ekki búinn að upphugsa nett til að blóka um... það er líklega fegurðin við þetta maður getur sest hérna og skrifað allan fjandann án þess að hugsa einu sinni um það.

Helgin (hérna kemur þetta daglega)...

Hún var hið mesta brill. Keppnin var fín en ég er ósáttur við þriðja sætið, það var eitthvað svona dóttir Ellenar Kristjáns eitthvað gefum henni verðlaun bara útaf því og fyrsta sætið var líka ekki nógu gott. Ég hefði viljað sjá VMA á palli þeir áttu það svo sannarlega skilið. við vorum reyndar farin að halda að þeir mundu taka fyrsta sætið fyrst að við gerðum það ekki. En nei það var ekki, í staðin fékk þjóðlaga tónlistin verðlaunin, hún var að syngja mjög vel en ég fannst VMA mun, mun betri.
Við voru hinsvegar nokkuð sátt, fórum heim með helming verðlaunanna.
Síðan var það Sjallinn. Frábær skemmtun, BSG voru að spila. Mjög einkennileg markaðssetning hjá Sjallanum að vera með BSG þegar 3000 unglingar eru á staðnum. Þá bóka þeir bandið sem dregur að 50 og 60 ára liðið. En þeir um það, ég skemmti mér mjög vel enda í góðra vina hópi.
Við fórum á Greifan á laugardagskvöldinu. Þeir gera frábærann mat. Grillhúsið hinsvegar var algjört drasl. Rándýrt og hund lélegt. Ekki, Ekki far þangað. Pantið allavega ekkert annað en hamborgara, allt annað er drasl.

En Akureyri er kúl.

Nóg í bili.

Gummi -fyrir SogH-